|
| Uppfærsla... |
|
Nú í kvöld uppfærðum við hjá Xodus gagnagrunnsþjóna okkar, og tók það smá meiri tíma en við gerðum ráð fyrir og duttu vefir sem vistaðir eru hjá okkur niður í nokkurn tíma og biðjumst við velvirðingar á því.
Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær, að þessi uppfærsla mun auka hraða og öryggi vefsvæða sem vistuð eru hjá okkur til mikilla muna og vonumst við til að viðskiptavinir muni finna muninn.
Með kveðju frá Xodus... |
| Lesa alla fréttina |
| Datacell / WikiLeaks velja Xodus greiðslukerfi |
|
Wikileaks, sem vart þarf að kynna, notast við greiðslusíðu sem er smíðuð af Xodus ehf. við að safna styrkjum og áheitum.
Greiðslusíðan sem Xodus ehf. smíðaði er vistuð hjá Datacell í Sviss og má segja að þarna sé á ferðinni ein frægasta greiðslusíða í heimi í dag.
Kröfur um öryggi eru gríðarlegar á þessari greiðslusíðu, og var því leitað til Xodus ehf. vegna verkefnisins.
|
| Lesa alla fréttina |
| Skífan opnar vefverslun |
|
Skífan hefur nú opnað nýjan og glæsilegan söluvef á netinu og var Xodus vefverslanakerfið valið fyrir þennan vinsæla vef.
Þessi aðgengilegi og skemmtilegi vefur býður upp á alla vinsælustu titlana fyrir DVD, CD, tölvuleiki og fleira og hvetjum við sem flesta til að kíkja á vefinn þeirra og versla sér eins og eina góða mynd fyrir jólin.
www.skifan.is |
| Lesa alla fréttina |
| ProDJ.is velur Xodus |
|
ProDJ.is hefur nú komið sér vel fyrir á vefnum.
ProDJ býður þjónustu sína í afmæli, brúðkaup, kokteilboð og annan fögnuð, þar sem óskað er eftir einfaldri eða sérhæfðri tónlistar þjónustu. Hjá ProDJ eru engin vandamál - bara lausnir, sérsniðnar að óskum viðskiptavina.
Hafðu samband og kynntu þér frábæra þjónustu okkar og verð.
Ekki bara plötusnúðar.
www.prodj.is |
| Lesa alla fréttina |
| 66 Guesthouse með nýja síðu |
|
66 Guesthouse hefur nú fengið nýjar síður fyrir starfsemi sína.
Um er að ræða vef sem er beintengdur í Xodus hótelbókunarkerfið LOKI og er því hægt að bóka sér herbergi beint af vef 66 Guesthouse Suðueryri.
Við óskum 66 Guesthouse til hamingju með gistihúsið og vefinn og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni.
www.66guesthouse.is |
| Lesa alla fréttina |
| FitFood.is opnar netverslun |
|
Bætiefnabúllan, verslun með fæðubótaefni og vörur fyrir fólk sem vill hollan lífsstíl, hefur nú opnað netverslunina Fitfood.is.
Verslunin er mjög skemmtilega uppbyggð, vörur eru flokkaðar á þægilegan hátt sem gerir leit að réttri vöru fljótlega og aðgengilega.
Við óskum þeim Bjarna Vestmar og Telmu til hamingju með verslunina og hvetjum fólk til að skoða vefinn, og renna við í verslunina þeirra að Kaplahrauni 1 í Hafnarfirði.
Xodus ehf.
Vefurinn: www.fitfood.is |
| Lesa alla fréttina |
|
|