|
|
27.5.2010 00:00:00
Xodus ehf leitar að sölumanni/konu
|
Xodus ehf. leitar að sölumanni/konu til að selja hugbúnaðarlausnir ásamt ýmsum vörum og þjónustu sem Xodus ehf. hefur upp á að bjóða. Tölvukunnátta ,sjálfstæð hugsun, hressleiki og jákvætt viðhorf skilyrði.
Um er að ræða sölu á veflausnum, ss. netverslunum, veflausnum, skráningum á ferðavefinn www.DiscoverIceland.is , hótelbókunarkerfinu LOKI ásamt fleiri vörum og þjónustu sem Xodus ehf. býður upp á.
Xodus ehf. starfar fyrir fyrirtæki á borð við Atlantsolíu, World Class, Iceland Excursions svo nokkur séu nefnd. Við erum lítið fyrirtæki og höfum verið á markaðnum í 7 ár með góðum árangri og stefnum enn lengra.
Ef þú hefur áhuga á spennandi starfi í skemmtilegu umhverfi hafðu þá samband við okkur.
Umsóknir sendist á info@xodus.is , einnig má senda inn umsókn á http://www.xodus.is/umsokn.aspx
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
11.5.2010 00:00:00
FitFood.is opnar netverslun
|
Bætiefnabúllan, verslun með fæðubótaefni og vörur fyrir fólk sem vill hollan lífsstíl, hefur nú opnað netverslunina Fitfood.is.
Verslunin er mjög skemmtilega uppbyggð, vörur eru flokkaðar á þægilegan hátt sem gerir leit að réttri vöru fljótlega og aðgengilega.
Við óskum þeim Bjarna Vestmar og Telmu til hamingju með verslunina og hvetjum fólk til að skoða vefinn, og renna við í verslunina þeirra að Kaplahrauni 1 í Hafnarfirði.
Xodus ehf.
Vefurinn: www.fitfood.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
16.6.2009 00:00:00
Straumrof...
|
Þriðjudagskvöld 16 júní verður rafmagn tekið af húsinu hjá okkur í Xodus vegna viðgerða.
Straumrofið verður kl: 20:00 og á að standa í klukkutíma.
Við munum keyra vélarnar okkar og annað á varaaflgjöfum, og vonumst til að þeir dugi þar til rafmagn kemst á aftur.
Einnig höfum við fengið tilkynningu frá HS Veitum, en þar er okkur tilkynnt að straumur mun verða tekinn af öllum Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi aðfaranótt föstudagsins 19 júní, frá kl 01:00 til kl 05:00.
Það er ljóst að varaaflgjafarnir okkar duga ekki í 4 tíma, og ef okkur tekst ekki að tengja rafal við reðihjól og plata Hlyn í að troða pedala, þá neyðumst við til að keyra vefþjónana okkar niður á meðan á þessu stendur.
Við vonum að þetta brölt valdi ekki viðskiptavinum okkar óþægindum.
Starfsmenn Xodus ehf.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
11.5.2009 00:00:00
Bein útsending frá arnarhreiðri.
|
Við hjá Xodus ehf fengum sérstakt og skemmtilegt verkefni á dögunum, en það er að vista og smíða kerfi í kringum vefmyndavél sem sýnir arnarpar í beinni útsendingu.
Þar sem aðstæður, og aðstæður eru mjög svo sérstakar í kringum þetta verkefni þarf að leita eftir sérstökum lausnum, og það er eitthvað sem við hjá Xodus ehf kunnum vel að meta, (kannski erum við bara svona sérstakir).
Vefmyndavélin er komin í loftið, og munum við halda áfram að vinna í verkinu, stilla, laga og gera allt betra.
Við hvetjum alla að skoða þessa einstöku vélmyndavél með því að smella hér.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
23.9.2008 11:12:00
netverslanakerfið eshop.is opnar
|
Xodus ehf hefur undanfarið unnið að nýstárlegu vefverslanakerfi sem er nú tilbúið og búið að opna.
Um er að ræða frábæran valkost fyrir þá sem eru að leita sér að ódýrri, en samt fullkominni netverslun.
Ekkert stofngjald, mánaðargjald frá aðeins kr. 5.900,-
Innifalið er aðgangur að öruggu vefsvæði, greiðslukortagátt, möguleiki á millifærslum, ótakmarkað magn af vörum og vöruflokkum ásamt ýmsum fleiri frábærum möguleikum.
Kíktu á www.eshop.is til að fá þér vefverslun...
Bestu kveðjur frá starfsmönnum Xodus ehf.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
16.4.2008 15:47:00
Atlantsolía með nýjan vef.
|
Atlantsolía hefur nú fengið andlitslyftingu á vefsíður sínar.
"Gamli" vefurinn var smíðaður fyrir nokkrum árum og í ljósi aukinna krafna var ákveðið að demba sér í að smíða nýjan vef alveg frá grunni.
Gríðarlega margar nýjungar er að finna á nýja vef Atlantsolíu, og má segja að starfsmenn Xodus hafi gefið allt sitt í þennan vef.
Öll hönnun og smíði var í höndum Xodus ásamt starfsfólki Atlantsolíu og er það von okkar að viðskiptavinir Atlantsolíu njóti vefsins.
Starfsmenn Xodus ehf.
www.atlantsolia.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
8.2.2008 16:45:00
Skólahreysti á netið.
|
SKólahreysti, hinar gríðarlega vinsælu hreystikeppnir fyrir grunnskólanema sem haldnar hafa verið um land allt í nokkur ár og sýndar á Skjá einum hefur nú opnað vefsíður á netinu.
Andrés og Lára, forsvarsmenn keppninar fengu Xodus til að smíða skemmtilegan vef sem höfðar til unglinga og eykur á áhuga á Skólahreystimótunum.
Við hjá Xodus tókum mið af því sem unglingar eru að nota á netinu í dag, komum fram með óhefðbundið aðgengi að vefnum sem og útlit og verður að segjast að vinsældir vefsins eru framar öllum vonum.
Hægt er að skoða myndasafn, sjá fréttir, bera saman árangur og stöðu skóla sem og nálgast allar upplýsingar um Skólahreysti mótin og Skólahreysti vellina.
Vefurinn mun verða áfram í þróun hjá Xodus og munu skemmtilegar nýjungar líta dagsins ljós í framtíðinni.
Við óskum Andrési og Láru og öllu Skólahreystigenginu til hamingju með vefinn.
www.skolahreysti.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
27.11.2007 16:18:00
Félag bókhaldsstofa til Xodus
|
Félag bókhaldsstofa hafa nu fengið nýjar vefsiður sem voru hannaðar af Xodus, og keyra á Xodus vefumsjónarkerfinu.
Síðurnar voru hannaðar og uppsettar með það að leiðarljósi að aðgengi yrði að vera einfalt og auðvelt skyldi að umgangast vefsvæðið.
Gríðarlega mikið efni er á vefsvæðinu, bæði fyrir leikmenn sem og félagsmenn Félagsins og mun i framtíðinni efnið aðeins aukast.
Við óskum Félagi bókhaldsstofa til hamingju með nýja vefsvæðið og hvetjum sem flesta sem vantar bókara að kíkja á félagsmenn FBO á www.fbo.is .
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
5.9.2007 12:34:00
Shokk.is með nýjan vef.
|
Laugar / World Class kynna hér frábæra nýjung í heilsræktarflóruna á Íslandi, en er hér um að ræða líkamsrækt fyrir börn og unglinga, eitthvað sem hefur vantað lengi á Íslandi.
Leitað var til Xodus með að búa til hresst og ferskt útlit á Shokk.is vefinn og er vefurinn tengdur í Xodus vefumsjónarkerfið.
"SHOKK æfingakerfin eru af breskri fyrirmynd.
Tilgangur SHOKK æfingakerfisins er að gefa krökkum á aldrinum 8-15 ára kost á að hreyfa sig og skemmta sér í flottum tækjasal sem er sniðinn að þeirra þörfum.
SHOKK æfingakerfið er víða í heiminum en salurinn í World Class Laugum er fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. "
Við hvetjum sem flesta til að kíkja á www.shokk.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
27.3.2007 18:24:00
MXsport.is, netverslun fyrir hjólafólk
|
Nú hefur nýjasta netverslunin úr smiðju Xodus ehf litið dagsins ljós og má fullyrða að þessi verslun eigi eftir að slá í gegn hjá fólki sem stundar eitt mest vaxandi sport á Íslandi, mótorhjólasportið.
Mxsport.is er netverslun sem sérhæfir sig í sölu á búnaði og vara/aukahlutum fyrir moto-cross og enduroakstur. Verslunin státar af nýjustu útgáfu Xodus vefverslunarkerfisins og má sjá kerfisnýjungar eins og eiginleika vöru, tillboðsvörur, tengdar vörur ásamt ýmsu öðru til að gera upplifun viðskiptavinarins sem besta.
Netverslunin MXsport.is er tengd við greiðslugátt Kortaþjónustunar og býður einnig upp á millifærslur.
Það er Kasma ehf sem á og rekur MXsport.is og óskum við Kasma ehf innilega til hamingju með vefinn.
www.mxsport.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
27.3.2007 18:24:00
Laugar Spa með nýtt útlit
|
Laugar Spa hefur nú fengið andlitslyftingu og leirbað á vefinn sinn.
Það var Nordic Emarketing sem hönnuðu útlit vefsins og síðan var allt tengt í Xodus vefumsjónarkerfið.
Þess má geta að vinna heldur áfram við vefinn og má líta margar nýjungar á næstu vikum.
www.laugarspa.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
27.3.2007 18:21:00
Ruddar, bifhjólaklúbbur með vefsíðu
|
Það var okkur sönn ánægja að smíða vef fyrir bifhjólaklúbb.
Það voru Ruddar (sem eru mestu gæðablóð) sem fengu þennan glæsilega vef sem á skömmum tíma hefur orðið gríðarlega mikið sóttur vefur enda mikið af áhugaverðu efni á síðu Ruddana.
Á forsíðu vefsins má sjá beintengingu gegnum XML við nokkrar af helstu fréttaveitum heims á sviði bifhjólaíþrótta.
Einnig var notast við frítt spjallborð frá Yafnet á vefinn.
Purrum fyrir lífið, lifum fyrir purrið Ruddar.
www.ruddar.com
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
27.3.2007 18:18:00
Hótel Örk endurnýjar vefsíður sínar
|
Nú fyrir stuttu síðan endurnýjaði Xodus ehf vefsíður Hótel Arkar í Hveragerði.
Hótel í þeim klassa sem Hótel Örk er krefst fallegrar og aðgengilegrar vefsíðu og var það haft að markmiði við hönnun og uppsetningu nýju vefsíðunar.
Mikið var lagt upp úr að Google, leitarvélin góða finni vefsíður Hótelsins og tókst sú vinna vel.
Við óskum Arkarfólki til hamingju með nýja vefinn.
www.hotel-ork.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
21.12.2006 11:01:00
Demantar.is, ný skartgripaverslun á netinu
|
Xodus ehf hefur nú nýlokið við að smíða og hanna einn af öflugri verslunarvefum sem sést hafa á Íslandi.
Um er að ræða nýtt fyrirtæki á Íslandi, Demantar ehf. sem sérhæfir sig í demantaskartgripum á verðum sem hafa ekki sést á Íslandi áður.
Mikið úrval er af glæsilegum tilbúnum skartgripum, og einnig er hægt að búa til sinn eingin skartgrip á vefnum.
Valinn er skartgripur að eigin vali, og síðan valdir demantar í gripinn. Hægt er að velja úr allt að 500.000 demöntum úr gagnagrunnum Demantar.is. Einnig er hægt að kaupa staka demanta, en er það nýjung hér á landi.
Demantar.is fékk um daginn ágætis umfjöllun í Íslandi í býtið á Stöð 2.
Við hjá Xodus óskum þeim Magnúsi og Margréti til hamingju með nýja vefinn og óskum þeim velfarnaðar með nýja fyrirtækið, sem byggir þó á áratuga reynslu þeirra í skartgripabransanum.
www.demantar.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
16.11.2006 17:13:00
Elnet með nýjar síður
|
Elnet Tækni ehf hefur nú fengið nýjar vefsíður.
Elnet var með vefsíður frá Xodus en voru þær komnar nokkuð til ára sinna, og var því ákveðið að hressa upp á vefsvæðið. Nýji vefurinn er einstaklega glæsilegur með grríðarlega miklu magni af upplýsingum.
Ef þig vantar gervihnattamóttakara, kapla, mælitæki eða hvað sem er sem viðkemur sjónvarpi og útvarpi kíktu þá á www.elnet.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
22.9.2006 16:58:00
Laugar Cafe með nýjan vef
|
Laugar Cafe, í Laugum hefur nú opnað nýjar vefsíður.
Það var Ágústa Guðmundsdóttir sem hannaði þessar fallegu síður og Xodus tengdi síðurnar í Xodus vefumsjónarkefið.
Á vefnum má panta sali í Laugum, hvort heldur er fyrir fundi, samkomur eða í raun hvað sem er, einnig má skoða matseðil Lauga Cafe og margt fleira.
Við óskum Laugar Cafe til hamingju með nýja vefinn.
www.laugarcafe.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
6.7.2006 13:25:00
Clevermitten, snjalla lúffan...
|
Júlíus Júlíusson, uppfinningamaður og snillingur hefur nú komið fram á sjónarsviðið með frábæra nýjung, Clever Mitten, sem er vettlingur sem vert er að skoða.
Hvern kannast ekki við að þurfa að rífa af sér vettlingana þegar á að gera eitthvað sem krefst fingralipurðar?
Júlíus hefur fundið lausn á þessum vandamáli og hvetjum við alla til að skoða vefinn hans, sem hann fékk okkur hjá Xodus ehf til að hanna og smíða ;) og skoða þessa frábæru uppfinningu.
www.clevermitten.com
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
6.7.2006 13:21:00
Hótel Hlið með nýja síðu
|
Hótel Hlíð, sem er 21 herbergja hótel rétt hjá Hveragerði fékk Xodus ehf til að búa til og hanna litla og sæta síðu fyrir hótelið fyrir stuttu. Hótel Hlíð, sem er í eigu sömu aðila og Hótel Örk og Hótel Cabin er staðsett í fallegu og notalegu umhverfi, rétt á milli Þorlákshafnar og Hvergerðis og hvetjum við alla sem vilja eiga notalega stund að skella sér á Hótel Hlíð.
www.hotel-hlid.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
16.5.2006 09:59:00
Starfsmenn Xodus fengu smá frí
|
Þar sem starfsmenn Xodus hafa varla tekið sér frí í þau 3 ár sem fyrirtækið hefur starfað var loks ákveðið að halda smá "árshátið" og fóru af því tilefni starfsmenn í nokkra daga ferðalag til Evrópu.
Flogið var til Þýskalands og tekinn þar forláta Volvo á leigu og ekið í hendingskasti út úr Þýskalandi, inn í Tékkland, gist þar í eina nótt í Prag og ekið þar næst alla leið til Póllands þar sem takmarkið var að fara að skoða Auschwitz.
Til Póllands var komið 2 dögum eftir lendingu í Þýskalandi og var deginum eytt í að skoða fangabúðirnar í Auschwitz. Það verður að segjast að mjög sérstakt er að skoða þessa staði og setti menn hljóða á stundum.
Þar næst var ekið til Frakklands og fengu menn sér þar rauðvín og snigla, svona rétt til að fullkomna dæmið.
Nú eru starfsmenn mættir aftur til vinnu, eitursprækir og tilbúnir í slaginn reynslunni ríkari.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
12.4.2006 15:01:00
World Class opnar nýjan vef
|
World Class hefur nú opnað nýjan vef. Þar sem gríðarleg aukning hefur verið á gestum á vefsvæði World Class var ákveðið að stórbæta vefinn og keyrir þessi nýji vefur í nýjasta vefusmjónarkerfinu frá Xodus ehf.
Talsvert um nýjungar koma fram á þessum nýja vef, en má þar nefna mjög nákvæma stundaskrá, netverslun þar sem boðið er upp á að versla sér heilsuræktarkort á vefnum og margt fleira. Xodus ehf hannaði nýja útlitið á vefnum í samvinnu með World Class.
Vefurinn keyrir sem fyrr segir á nýjasta vefumsjónarkerfi Xodus ehf en er það byggt á .NET staðlinum version 2.0.
www.worldclass.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
12.4.2006 14:47:00
Xodus smíðar stigakerfi fyrir Skólahreysti
|
Þar sem starfsmenn Xodus eru heilsufrík þá lá vel við að Xodus smíðaði stigaskráningakerfi fyrir Skólahreysti mót sem fram fóru á síðastliðnum mánuðum.
Icefitness með þau hjónin Andrés og Láru í fararbroddi héldu nú fyrir stuttu nokkrar undankeppnir í Skólahreysti, sem samanstanda af frábærlega skemmtilegum þrautum fyrir krakka á grunnskólaaldri og var síðan úrslitakeppnin haldin í Laugardalshöllinni þann 2 apríl s.l og var sýnd á beinni á Sýn.
Það kom í hlut Xodus að halda utan um stigaútreikninga og að birta útreikningana á stóru tjaldi á keppnunum. Ákveðið var að smíða alvöru hugbúnað sem heldur utan um þetta allt og úr varð "Xodus stigaskráningarkerfið". Hugbúnaðurinn með þetta "frumlega" nafn reiknar öll stig og birtir eftir ákveðnum röðum stöðu keppninar á skjávarpa og í tölvur sjónvarpskynna og útsendingarbíla, einnig býður kerfið upp á að birta auglýsingar ásamt hreyfimyndum ofl.
Kerfið er smíðað í C# í .NET version 2.0 og keyrir á XML.
Allar nánari upplýsingar gefa starfsmenn Xodus ehf í síma 517-1780 eða í info(hjá)xodus.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
6.2.2006 16:14:00
Xodus smíðar auglýsingahugbúnað.
|
Undanfarna mánuði hefur Xodus ehf unnið hörðum höndum að hönnun og smíði á nýjum hugbúnað sem fengið hefur nafnið Xplay. Hugbúnaðurinn er í þeim geira er oft er kallaður "Digital Signage", eða stafræn auglýsingaskilti.
Kerfið hefur gríðarlega mikla möguleika, Xplay hugbúnaðurinn er innsettur á nettengda tölvu í t.d. verslun, tölvan tengd við sjónvarp, hvort heldur er venjulegt sjónvarp, breiðtjaldssjónvarp eða venjulegan tölvuskjá og sækir Xplay hugbúnaðurinn allt auglýsingaefni á miðlægan gagnagrunn á þjónum Xodus ehf. Einfalt er fyrir notendur kerfisins að setja inn nýjar auglýsingar, kyrrmyndir sem og hreyfimyndir og myndbönd.
Fyrsta kerfið er komið upp í nokkrum verslunum Nóatúns, en það er SKilaboð ehf sem hefur veg og vanda að því verkefni. Er þar um að ræða annars vegar auglýsingaskjáir, en hinsvegar verðskjáir þar sem sjá má verð ýmissa vörutegunda í versluninni.
Tengingar við veðurfarsupplýsingar Veðurstofu Íslands, fréttir af MBL.is og fleiri upplýsingar eru einnig mögulegar í Xplay auglýsingarkerfinu og munu í framtíðinni ýmsar skemmtilegar og nytsamlegar nýjungar bætast í kerfið.
Þar sem Xplay kerfið er keyrt miðlægt gefur það möguleika á mikilli sérhæfingu, s.s. tengingar við birgðabókhaldskerfi, sölukerfi, verðupplýsingar, komu og brottfarartíma osfrv.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
19.8.2005 17:43:00
Þú færð kraft hjá Xodus...
|
Xodus er nú komið á fulla ferð, í bókstaflegri merkingu eins og sjá má á þessari mynd. Hér er um að ræða Volvo Kryppa sem er í eigu Stígs Stígssonar og er hér á myndinni á leið til Akureyrar tilað keppa í sandspyrnu. Við vonum að Stíg og bróður hans Auðni gangi vel í keppninni og vonum líka að merkið á húddinu gefi þeim smá auka kraft :)
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
6.8.2005 10:51:00
Bilun í beini (router)
|
|
Undanfarna daga hefur samband við vefi og póstföng vistuð hjá okkur verið aðeins slitrótt, en var það vegna bilunar í router. Datt routerinn út í nokkrar sekúndur yfir daginn en hefur nú verið settur á eftirlaun og fjárfest var í nýjum Cisco router af fullkomnustu gerð. Bæði eykst öryggi sem og hraði á vefunum og póstinum við þessa uppfærslu.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
2.8.2005 14:27:00
Worldclass fær innranetsvef
|
Xodus ehf hefur nú nýlokið smíði á innranetsvef fyrir World Class tengt við vefumsjónarkerfi Xodus. Um er að ræða afar fullkominn vef þar sem starfsmenn geta skipst á skoðunum, sent skilaboð til hvors annars ásamt því að geta skoðað og fræðst um fyrirtækið, hvað sé á döfinni og margt fleira. Mjög fullkomin aðgangsstýring er á vefumsjónarkerfinu og er kerfið allt smíðað í .NET umhverfinu,
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
18.7.2005 14:52:00
Festi útgerðarfélag til Xodus
|
Festi ehf, útgerðarfélag og fiskvinnsla valdi Xodus ehf til að hanna fyrir sig merki fyrirtækisins sem og vefsíður fyrirtækisins. Um er að ræða einfaldan vef sem er ætlaður sem stutt kynning á fyrirtækinu og starfsemi þess ásamt starfsmönnum, vefurinn er tengdur við vefumsjónarkerfi Xodus ehf. Xodus ehf hannaði einnig allt bréfsefni fyrir Festi ehf, s.s. umslög, nafnspjöld og reikninga svo eitthvað sé talið Við óskum Festi ehf til hamingju með nýja vefinn. www.festi.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
25.5.2005 14:06:00
Logoprent opnar nýjan vef
|
Logoprent ehf, sem sérhæfir sig meðal annars í að prenta á ýmis konar auglýsingavörur og hefur í sölu hina gríðarlega vinsælu nafnakönnur hefur nú bæst í stækkandi hóp viðskiptavina Xodus. Logoprent valdi að tengjast síðukerfi, fréttakerfi og verslunarkefi í vefumsjónarkerfi Xodus. Við óskum Logoprent til hamingju með nýja vefinn og hvetjum gesti til að kíkja og fá sér nafnakönnu sem fyrst á www.logoprent.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
25.5.2005 13:57:00
Puls.is fær nýja vefsíðu
|
Puls.is hefur nú opnað nýja og glæsilega vefverslun þar sem boðið er upp á fjölmargt athyglisvert, s.s. Púlstæki, Ozonetæki, heilsudrykki og margt fleira. Vefurinn er keyrður í vefumsjónarkerfi Xodus og notar síðukerfið, fréttakerfið og netverslunina og er beintengt við Kortaþjónustuna. Við hvetjum alla til að skoða www.puls.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
23.3.2005 19:00:00
Icefitness velur Xodus
|
Icefitness er ný keppnaröð af Fitness keppnum sem hefur nú tekið við af hinum alþekktu Galaxy Fitness keppnum sem hafa verið haldnar hér á landi um árabil. Icefitness valdi Xodus til að smíða nýjar vefsíður fyrir Icefitnessið og keyrir vefurinn í Xodus vefumsjónarkerfi. Við hjá Xodus viljum þakka Andrési Guðmundssyni kraftatrölli fyrir skemmtilega samvinnu og óskum honum og spúsu hans til hamingju með vefinn. www.icefitness.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
23.2.2005 10:17:00
Xodus smíðar uppboðskerfi
|
Xodus ehf hefur nú nýlokið við eitt af stærri verkefnum fyrirtækisins en það var að smíða uppboðskerfi til notkunar á netinu. Um er að ræða uppboðsvefinn www.10.is sem er að miklu leyti byggður upp á svipaðan hátt og ebay, sem er varla leiðum að líkjast þar sem ebay er stærsti uppboðsvefur í heimi.
Kerfið hjá Xodus ehf er smíðað í ASP, VBScript og keyrir á Microsoft SQL 2000 gagnagrunnum.
Möguleikarnir á www.10.is eru ótrúlega margir, og hvetjum við fólk til að kíkja þar við og sjá hvað er í boði, nú eða þá bara að selja úr geymslunni.
Við óskum eigendum www.10.is til hamingju með kerfið.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
11.2.2005 16:55:00
Geymslusvæðið fær útboðskerfi
|
Xodus ehf hefur nú lokið við að smíða útboðskerfi fyrir Geymslusvæðið í Kapelluhrauni.
Geymslusvæðið ehf sér um að bjóða út tæki og tól frá Bandaríska varnarliðinu og tóku menn þar á bæ þá ákvörðun að fá Xodus ehf til að smíða fyrir sig útboðskerfi sem keyrt er á netinu og var verkinu lokið nú í dag og vefurinn var opnaður.
Hægt er að skrá sig á vefnum til að bjóða í tæki sem eru listuð þar, bak við vefinn er öflugt kerfi sem stýrir tilboðum og hafa starfsmenn Geymslusvæðisins aðgang að öllum nauðsynlegum upplýsingum.
Kerfið er byggt á ASP / SQL og er sérsmíði.
Við óskum Geymslusvæðinu til hamingju með vefinn www.geymslusvaedid.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
11.2.2005 16:45:00
Vínkjallarinn opnar vefverslun
|
Vínkjallarinn hefur nú opnað nýja vefverslun þar sem hægt er að versla víngerðarefni á netinu. Um er að ræða stórglæsilega síðu með gríðarlega miklu vöruúrvali, og verður að teljast öruggt mál að margir eigi eftir að nýta sér þessa nýjung. Vefur Vínkjallarans er byggður á nýjustu útgáfunni af Xodus vefumsjónarkerfi, er keyrð í .NET umhverfi og er greiðslugáttin tengd við Kortaþjónustuna í Skipholti. Við óskum Vínkjallaranum til hamingju með nýja vefinn. www.vinkjallarinn.is
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
27.10.2004 15:49:00
Kraftur fær nýjan vef
|
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hefur nú opnað nýjan og glæsilegan vef. Vefurinn er ætlaður sem samastaður og upplýsingavettvangur fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Vefurinn sem smíðaður var af Xodus Veflausnum, og hannaður af Daníel Reynissyni formanni Krafts, býður upp á spjallborð, þar sem fólk getur skipst á skoðunum, reynslusögum og góðum ráðum, greinum, fréttum og fjölmörgu öðru. Kraftur.is er keyrt af vefumsjónarkerfi Xodus. Við óskum Krafts félögum til hamingju með vefinn og sendum okkar sterkustu strauma í baráttunni. www.kraftur.org
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
5.10.2004 14:54:00
Xodus smíðar tengingu við Kortaþjónustuna
|
|
Xodus hefur nú smíðað tengingu frá vefverslun Xodus vefstjórans í greiðslugátt Kortaþjónustunnar .
Kortaþjónustan býður viðskiptavinum sínum upp á netgreiðslur með greiðslukortum á rauntíma og er Xodus eitt af fyrstu fyrirtækjum hérlendis sem bjóða viðskiptavinum sínum upp á þessar tengingar í kerfum Xodus.
Þau fyrirtæki sem nýta sér þessa þjónustu í fyrstu atrennu eru Bátaland, Hugbrot, Nordicstore og Icelandic Hotels. Einnig munu nokkrir núverandi viðskiptavinir Xodus að notfæra sér þessa tengingu á næstu vikum og það er gaman að sjá frábærar viðtökur þar sem fyrirspurnum hefur beinlínis rignt yfir okkur hér hjá Xodus undanfarna daga og erum við ekki í vafa um að margir eigi eftir að notfæra sér þau frábæru tilboð á Vefstjóranum okkar á næstu vikum og mánuðum.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Xodus Vefstjórann hringdu í okkur í síma 517-1780 eða sendu okkur póst á info(hjá)xodus.is
Starfsfólk Xodus.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
5.10.2004 14:44:00
Icelandic Hotels með nýtt bókunarkerfi
|
Xodus Veflausnir hafa nú lokið við að smíða nettengt bókunarkerfi fyrir Icelandic Hotels, og má skoða kerfið á vef hótelana á www.icelandichotels.is .
Kerfið, sem er tengt LOKI hótelbókunarkerfinu sem Xodus smíðaði er eitt það alfullkomnasta sem völ er á. Gefur kerfið viðskiptavini sínum möguleika á að panta sér hótelherbergi beint af vefsíðum hótelsins og að greiða fyrir herbergið. Kerfið er tengt Kortaþjónustunni sem sér um að innheimta greiðslur af greiðslukorti viðskiptavinarins. Um leið og herbergi hefur verið bókað og greitt bókast pöntunin beint í LOKI hótelkerfið. Sparar þetta bókunaraðila talsverðan tíma þar sem bókun færist beint inn í kerfið.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
8.7.2004 15:17:00
Xodus smíðar miðasölukerfi fyrir PINK tónleikana
|
Xodus Veflausnir hafa nýverið lokið við að smíða miðapöntunarkerfi fyrir tónleika PINK sem halda á í Laugardalshöllinni 10 og 11 ágúst 2004. Það er LPromotions sem pöntuðu kerfið og eru að nota það á www.midar.is .
Kerfið er smíðað með beintengingu til Kortaþjónustunnar sem athugar greiðslukort, greiðslur ofl. og er allt gert á rauntíma. Kerfið er mjög öruggt, keyrt á SQL 2000 gagnagrunni, á SSL vefþjóni og allar upplýsingar eru dulkóðaðar eftir nýjustu tækni.
Næsta skref hjá Xodus er að tengja verslunarhluta Xodus Vefstjórans við Kortaþjónustuna og mun sú tenging verða tilbúin innan fárra daga.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
25.5.2004 20:48:00
Xodus tekur við uppfærslum á Travelnet.is
|
Travelnet.is og Xodus veflausnir hafa gert með sér samstarfssamning um að Xodus taki við uppfærslum og viðhaldi www.travelnet.is sem er einn stærsti og öflugasti ferðmannavefur okkar íslendinga.
Miklar breytingar eru á döfinni hjá Travelnet.is, má þar helst nefna að á næstunni mun vefsvæðið verða sett í vefumsjónarkerfi sem er sérsmíðað hjá Xodus Veflausnum fyrir vefi af því tagi sem Travelnet.is er. Munu allar uppfærslur verða mun markvissari, og að sjálfsögðu verður uppsetning fyrir gesti vefsins mun einfaldari og markvissari.
Fylgist vel með Travelnet.is á næstunni....
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
25.5.2004 20:32:00
Hótel Cabin opnar nýjan vef
|
Hótel Cabin í Borgartúni hefur nú opnað nýjan og glæsilegan vef sinn á léninu www.hotelcabin.is Xodus Veflausnir hönnuðu vefinn og er notað vefumsjónarkerfi Xodus til að halda utan um efnið á vefsíðunum. Við hjá Xodus óskum Hótel Cabin til hamingju með nýja vefsvæðið.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|
25.5.2004 20:27:00
Xodus opnar nýjar vefsíður
|
Xodus Veflausnir hafa nú uppfært vefsíður sínar. Það er von okkar Xodus manna að nýji vefurinn okkar sé aðgengilegri og bjóði upp á nánar og fræðandi upplýsingar fyrir þig lesandi góður.
Það má sjá á þessum nýja vef að nóg er að gerast hjá Xodus, vefstjórinn okkar er aldrei vinsælli, LOKI hótelkerfið er komið í fullan gang og vonumst við til að viðskiptavinir okkar, sem og "tilvonandi" viðskiptavinir okkar skoði vefinn og vonandi finna eitthvað við sitt hæfi.
Lesa alla fréttina
|
|
|
|