Senda síðu  Prenta síðu Í dag er fimmtudagur 9. september 2010 
Forsíða
Skjáauglýsingakerfi
Netverslunarkerfi
Veflausnir
Staðfestingarkóði
Innranetsvefir
Sérlausnir
Vefumsjónarkerfi
LOKI hótelkerfi
Hönnun
Þjónusta
Verkefnin
Uppsetning netfanga
Fyrirtækið
Tölfræði
 Notandanafn:
 Aðgangsorð:
 
vefpóstur
 


Vefumsjónarkerfi

Xodus vefumsjónarkerfið hefur frá upphafi Xodus ehf verið ein helsta söluvara fyrirtækisins.
Vefumsjónarkerfið er eitt það einfaldasta í notkun á markaðnum, en jafnframt eitt það fullkomnasta. 
 
Xodus vefumsjónarkerfið hentar öllum fyrirtækjum, hvort heldur er litlum sem aðeins þurfa að koma fram grunnupplýsingum á netið sem og stærri fyrirtækjum sem þurfa að koma miklum upplýsingum á framfæri.
 
Kerfið er byggt á einingum, og það er einmitt þetta einingakerfi sem gerir Xodus vefumsjónarkerfið aðlaðandi kost fyrir alla, því hægt er að velja einingar í kerfið og sníða það að þörfum hvers og eins og stýrist verð kerfisins eftir því hve margar einingar eru notaðar.
 
Nokkrar af þeim einingum sem eru í Xodus vefumsjónarkerfinu eru fréttakerfi, síðukerfi, auglýsingaborðakerfi, póstlistakerfi, myndakerfi, starfsmannakerfi, dagatal, notendastjórn, bókunarkerfi, bílasölukerfi, netverslun sem og ýmsar sérhæfðari einingar.  Einnig býður kerfið upp á að vefsíðurnar sé á mörgum tungumálum.
 
Xodus vefumsjónarkerfið er byggt á .NET staðlinum sem er sá nýjasti frá Microsoft í dag, allir vefir sem eru tengdir í kerfið eru tengdir við Microsoft SQL gagnagrunna sem sjá um að halda utan um efni vefsins.  Mjög öflug vöktun er á vefumsjónarkerfinu, þá hvort heldur sé til að fylgjast með óæskilegum aðgangi sem og lætur kerfið starfsmenn Xodus ehf vita ef upp kemur villa á vefsvæðinu.
 
Það er útbreiddur misskilningur að það sé dýrt að nota vefumsjónarekerfi í dag.  Þegar dæmið er skoðað í kjölin þá er í lang flestum tilfellum mun ódýrara sem og hagkvæmara fyrir fyrirtæki að tengja vefi sína í Xodus vefumsjónarkerfið.  Kostir þess að nota vefumsjónarkerfið eru þeir að þá geta eigendur vefsins breytt öllu sjálfir á svipstundu, hvar sem er og hvenær sem er, ekki þarf að senda upplýsingarnar til vefara, sem síðan fer í verkið þegar hann getur og sendir síðan reikning fyrir sinni vinnu og skapast þar sparnaður hjá fyrirtækinu.
 
Xodus ehf hefur sérsmíðað fjölmargar einingar í vefumsjónarkerfið eftir þörfum viðskiptavina sinna, má þar nefna beintengingu í gengisskráningu, tengingu við fréttir MBL.is, tengingu við veðurupplýsingar Veðurstofunnar svo fátt eitt sé nefnt.

Einnig er vert að minnast aftur á það að í Xodus vefumsjónarkerfinu er einnig netverslunarkerfi, en er það einmitt sú eining sem er að verða ein sú vinsælasta hjá Xodus ehf í dag.  Í netversluninni er hægt að setja inn verslunarflokka, vörur, eiginleika með vörum s.s. stærðir, liti osfrv. kerfið getur reiknað flutningskostnað með tilliti til þyngdar vöru, hægt er að færa inn lagerstöðu vöru og þegar vara er uppseld kemur fram á vefnum að vara sé uppseld og einnig er hægt að láta vöru hverfa af vefnum þegar hún er uppseld.  Netverslun Xodus vefumsjónarkerfisins býður upp á greiðslugáttir bæði við Kortaþjónustuna sem og greiðslugátt Skýrr (Median) og hefur verslunin verið tekin út og vottuð af Kortaþjónustunni og FGM (Fjölgreiðslumiðlun hf).  Öllum þeim sem nota netverslun Xodus er boðin aðgangur að öruggum vefþjóni Xodus ehf (SSL) án endurgjalds, en einnig býðst notendum verslunarinnar að setja upp sín eigin leyfi fyrir öruggan þjón hjá Xodus gegn vægu gjaldi.
 
Ef þú ert að leita að vefumsjónarkerfi fyrir þitt fyrirtæki hafðu þá samband við okkur og sjáðu hvað við getum boðið þér.
 
 

Xodus ehf - Skútahraun 2 - 220 Hafnarfjörður - S. 517 1780 - info[hjá]xodus.is - Opnunartími virka daga kl. 09:00-18:00