Senda síðu  Prenta síðu Í dag er fimmtudagur 9. september 2010 
Forsíða
Skjáauglýsingakerfi
Netverslunarkerfi
Veflausnir
LOKI hótelkerfi
Hönnun
Þjónusta
Verkefnin
Hugbúnaðargerð
Merkingar
Vefsíður
Uppsetning netfanga
Fyrirtækið
Tölfræði
 Notandanafn:
 Aðgangsorð:
 
vefpóstur
 


Hugbúnaðargerð

Xodus stigaskráningakerfið
 
 Þar sem starfsmenn Xodus eru heilsufrík þá lá vel við að Xodus smíðaði stigaskráningakerfi fyrir Skólahreysti mót sem fram fóru á síðastliðnum mánuðum.
 
Icefitness með þau hjónin Andrés og Láru í fararbroddi héldu nú fyrir stuttu nokkrar undankeppnir í Skólahreysti, sem samanstanda af frábærlega skemmtilegum þrautum fyrir krakka á grunnskólaaldri og var síðan úrslitakeppnin haldin í Laugardalshöllinni þann 2 apríl s.l og var sýnd á beinni á Sýn.
 
Það kom í hlut Xodus að halda utan um stigaútreikninga og að birta útreikningana á stóru tjaldi á keppnunum.  Ákveðið var að smíða alvöru hugbúnað sem heldur utan um þetta allt og úr varð "Xodus stigaskráningarkerfið".  Hugbúnaðurinn með þetta "frumlega" nafn reiknar öll stig og birtir eftir ákveðnum röðum stöðu keppninar á skjávarpa og í tölvur sjónvarpskynna og útsendingarbíla, einnig býður kerfið upp á að birta auglýsingar ásamt hreyfimyndum ofl. Kerfið er smíðað í C# í .NET version 2.0 og keyrir á XML.

LOKI-PMS hótelbókunarkerfið.
 
Xodus ehf býður upp á hugbúnað fyrir gististaði innan ferðaþjónustunnar.  Kerfið kallast LOKI-PMS,  er alfarið skrifað í Jscript og ASP.NET, og keyrir á Microsoft SQL 2000 server sem er einn besti gagnagrunnsþjónn á markaðnum í dag hvort heldur er vegna hraða eða öryggis. 
Það sem gerir Loka sérstakann er að hann er alfarið keyrður á Netinu, sem hefur marga kosti s.s. útstöðvar þurfa engan sérhæfðan hugbúnað, einungis internettengingu.  Allar uppfærslur eiga sér aðeins stað á þjóninum, og er einnig mjög fljótlegt og einfalt að koma skilaboðum og fleiru til skila til notenda kerfisins. 
 
LOKI-PMS er í stöðugri þróun og er mjög stöðugur hugbúnaður sem hentar einstaklega vel fyrir smærri og meðalstóra gististaði.  Tengingar við bókhaldskerfi, s.s. Navision, Netbókhald og fleiri eru mögulegar sem getur gert LOKI-PMS kleyft að skrifa út reikninga.

Xodus ehf - Skútahraun 2 - 220 Hafnarfjörður - S. 517 1780 - info[hjá]xodus.is - Opnunartími virka daga kl. 09:00-18:00