Senda síðu  Prenta síðu Í dag er fimmtudagur 9. september 2010 
Forsíða
Skjáauglýsingakerfi
Netverslunarkerfi
Veflausnir
LOKI hótelkerfi
Hönnun
Þjónusta
Öryggiskannanir
Vefsíðuvöktun
Verkefnin
Uppsetning netfanga
Fyrirtækið
Tölfræði
 Notandanafn:
 Aðgangsorð:
 
vefpóstur
 


Öryggiskannanir

Tölvuhakkarar eru í miklum mæli að ráðast á vefsvæði. 
75% af árásum á vefsvæði eru framkvæmd á netverslanir, umsóknarform, tengisíður og vefsvæði sem eru gagnvirk. 
Vefsvæði eru opin öllum 24 stundir á dag, 7 daga vikunnar og halda oft á tíðum utan um viðkvæmar upplýsingar, svo sem viðskiptavini, símanúmer, kortaupplýsingar og netföng.
Eldveggir, örugg vefsvæði (SSL) og læstir vefþjónar eru oft varnarlausir gegn árásum.
Sérhannaðar vefsíður eru oftar en ekki lítið prófaðar með árásir í huga, og eru því oftar skotmark hakkara því þeir vita það að meirilíkur eru á að þeir finni veikleika á sérhönnuðum kerfum sem hafa ekki gengið í gegnum þær öryggisprófanir sem stærri kerfin ganga í gegnum.  Því þarf að prófa kerfin, ekki bara einu sinni heldur með reglubundnum hætti til að koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar finni glufu í vefsvæðunum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
 
Xodus ehf athugar vefsvæðið þitt fyrir veikleikum, s.s. SQL injections, XSS veikleikum ásamt ýmsum öðrum veikleikum.
Notaður er sértækur hugbúnaður í verkið og skilar hann ítarlegum skýrslum um ástand vefsvæðisins ásamt tillögum að endurbótum.
 
Láttu Xodus ehf athuga hvort vefsvæðið þitt sé eins öruggt og það þarf að vera.

Við prófum:
Hvort vefsvæðið sé öruggt gegn vefárásum.
Hvort hægt sé að innsetja eða ná upplýsingum úr gagnagrunnum. (SQL injections + Cross site scripting)
Hvort aðgangsorð, tengisíður og form séu örugg, einnig hvort hægt sé að nota hugbúnað til að senda í gegnum form á vefsvæðinu.
Hvort veikleikar séu í Javascriptum og AJAX hugbúnaði.
Hvort verslanir, körfur og vefform séu örugg fyrir árásum.
Margt annað sem viðkemur vefsvæðinu þínu.
Hafðu samband og athugaðu hvað við getum gert fyrir þig.

Xodus ehf - Skútahraun 2 - 220 Hafnarfjörður - S. 517 1780 - info[hjá]xodus.is - Opnunartími virka daga kl. 09:00-18:00