Senda síðu  Prenta síðu Í dag er laugardagur 31. júlí 2010 
Forsíða
Skjáauglýsingakerfi
Netverslunarkerfi
eShop
Kynning
Tæknilegt
Verðskrá
Veflausnir
LOKI hótelkerfi
Hönnun
Þjónusta
Verkefnin
Uppsetning netfanga
Fyrirtækið
Tölfræði
 Notandanafn:
 Aðgangsorð:
 
vefpóstur
 


Tæknilegt

Xodus netverslunarkerfið er smíðað í C# fyrir .NET.  Kerfið er að öllu leyti smíðað hjá Xodus ehf, og er því alíslensk framleiðsla.
 
Xodus vefverslunarkerfið er sífellt í þróun og hefur verið það í 5 ár, það er stefna okkar að gera besta netverslunarkerfi sem er á boðstólnum fyrir íslensk fyrirtæki og við teljum okkur vera á góðri leið með að uppfylla það.
 
Eftirfarandi einingar og eiginleikar eru innifaldir í Xodus netverslunarkerfinu. 
  • Ótakmarkaður fjöldi vöruflokka, undirflokka og vara.
  • Möguleiki er á að nota netverslunarkerfið sem vöruskrá, þ.e. að sleppa körfunni.
  • Ítarleg vöruskráning þar sem hægt er að setja ótakmarkaðan texta og myndir með vörum, ásamt skjölum, tenglum ofl.
  • Hægt er að búa til ótakmarkað marga eiginleika með vörum, s.s. stærðir, liti osfrv.
  • Mjög auðvelt er að tengja eiginleika við vörur.
  • Hægt er að tengja vörur sem "útsöluvörur, "nýjar vörur", "tilboðsvörur" osfrv. og láta þær vörur birtast á ákveðnum stað á vefsíðum.
  • Sendingarkostnað er hægt að tengja við verðskrá Íslandspósts og er þá reiknað eftir þyngd vöru.
  • Netverslunarkerfið býður upp á að tengja vörur við lagerstöðu, þannig að þegar vara er uppseld er hægt að láta hana hverfa af vefsíðum, láta vöru vera í verslun áfram en með textanum "vara uppseld", og einnig látið vöru vera áfram í verslun en "kaupa" hnappur hverfur.
  • Hægt er að tengja vörur saman, ef til dæmis er verið að selja prentara er hægt að setja prentarakapal sem tengda vöru og mun þá birtast tengill á prentarakapalinn á vörusíðu prentarans, engin takmörk eru fyrir hve margar vörur geta verið tengdar vörur.
  • Viðskiptavinir geta bæði sent vörusíðu með netpósti "senda þessa síðu", sem og prentað út prentvæna útgáfu af vörulýsingu.
  • Netverslunarkerfið heldur utan um allar pantanir, sendir bæði viðskiptavin og eiganda verslunar kvittun í netpósti um leið og pöntun hefur verið gerð og getur þá eigandi verslunarinnar tengt sig inn á stjórnhluta netverslunarinnar og skoðað pöntun, hakað við þegar pöntun er frágengin og klárað málin.
  • Skýrslugerð í Xodus netverslunarkerfinu er ítarleg en einföld, boðið er upp á skýrslur um sölu eftir tímabilum að eigin vali, og einnig er hægt að skoða skýrslur vegna pantana sem ekki hafa verið samþykktar, t.d. vegna greiðslukorta sem hefur verið hafnað osfrv.
  • Xodus netverslunarkerfið býður upp á tengingar við greiðslugáttir Kortaþjónustunnar og Skýrr.  Einnig er möguleiki á millifærslum, eftirkröfum, póstkröfum og staðgreiðslu við móttöku.  Stjórnandi verslunarinnar getur í raun bætt þeim greiðslumöguleikum sem honum hentar.í kerfið.
  • Tenging við SSL (secure socket layer) eða öruggan vefþjón er fyrir hendi í Xodus vefverslunarkerfinu, Xodus býður viðskiptavinum sínum upp á afnot af SSL þjóni Xodus og einnig er hægt að tengja netverslunina við eigið SSL leyfi.
  • Xodus netverslunarkerfið hefur verið tekið út af FGM (Fjölgreiðslumiðlun) og Kortaþjónustunni og uppfyllir allar öryggiskröfur 100%.

Hafðu samband og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.

 
 

Xodus ehf - Skútahraun 2 - 220 Hafnarfjörður - S. 517 1780 - info[hjá]xodus.is - Opnunartími virka daga kl. 09:00-18:00