
Xodus býður upp á eitt alvandaðasta og vinsælasta netverslunarkerfi á Íslandi í dag.
Netverslun Xodus hefur alla þá eiginleika sem netverslun þarf að uppfylla í dag.
Það er orðið ljóst að verslun á netinu er sífellt að aukast, og samkvæmt sérfræðingum í netnotkun og netmálum mun netverslun aukast verulega á næstu árum. Það er því síaukin krafa viðskiptavina að geta nálgast vörur, verð og þjónustu fyrirtækja á netinu, og Xodus getur uppfyllt þessar kröfur fyrir fyrirtækið þitt.
Xodus hefur smíðað fjölda netverslana, allt frá litlum verslunum upp í stór og flókin netverslunarkerfi sem tengd eru við bókhalds og birgðaforrit.
Ef þú ert að leita að netverslunarkerfi fyrir þitt fyrirtæki þá þarftu ekki að leita frekar, Xodus býður þér netverslunarkerfi þar sem þú getur sett inn vöruflokka, vörur að sjálfsögðu með nákvæmri lýsingu, stuttri lýsingu, vöruverði, myndum, vörunúmerum og fleira og fleira, skoðaðu
"tæknilegt" til að sjá nánari tæknilega lýsingu á Xodus netverslunarkerfinu.
Smelltu á myndirnar hér að neðan til að skoða nokkrar netverslanir sem Xodus hefur smíðað.